Þökkum Forseta vorum!

Hafi engin orðið til þess fyrr að upplýsa þjóðir heims um þá hættu sem kann að fylgja eldgosum á Íslandi ber okkur að þakka Ólafi Ragnari fyrir að bæta úr þeirri alvarlegu vanrækslu. sveimertha.jpg
mbl.is Dýrkeypt yfirlýsing forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas H Sveinsson

Það sem ÓRG hefur verið að blaðra að undanförnu hefur ekkert með "að upplýsa þjóðir heims um þá hættu sem kann að fylgja eldgosum á Íslandi" að gera. Það sem hann sækist eftir er að komast í fjölmiðla og auglýsa sjálfan sig. Því fyrr sem siðareglur verða settar á forsetann því betra, ef við eigum yfirhöfuð að hafa forestaembætti í núverandi mynd.

Tómas H Sveinsson, 27.4.2010 kl. 07:33

2 Smámynd: Hjörtur Sveinsson

Það má segja að Ólafur Ragnar hafi verið nokkuð brokkgengur í starfi. Það er þó með ólíkindum að þegar Ólafur hefur gert sínar stærstu skissur hefur Íslenska þjóðin hoppað af kæti og hrópað húrra. Tvö bestu dæmi þessarar hegðunar meirihluta þjóðarinnar var annarsvega þegar Ólafur var á þönum víða um lönd og mærði í hástert í orði og riti ágæti hina svo kölluð útrásar víkinga, engin gerði athugasemdir þá, Hins vegar, og til að bíta hausinn af skömminni, neitaði hann að undirrita lög frá alþingi um endurgreiðslu skulda okkar vegna icesave ránsins. Við munum aldrey fá að vita hvað  mörgum milljarða tugum eða hundruðum við höfum tapað og erum enn að tapa vegna þeirra forkastanlegu embættisverka forsetans. Loks þegar blessaður  maðurinn gerir svo eitthvað af viti, kemur fram af ábyrgð og heiðarleika, þá verður allt vitlaust. 

Hjörtur Sveinsson, 27.4.2010 kl. 08:20

3 Smámynd: Ólafur Als

Ekki átta ég mig á þeim heiðarleika og ábyrgð, sem felast í því að forsetinn vari við hættum af eldgosum. Eldjallafræðingar og aðrir sérfræðingar hafa nú um nokkurt skeið tjáð sig í erlendum fjölmiðlum um þær augljósu hættur sem af eldgosum undir jökli stafar og almenningur víða um heim hefur gert sér grein fyrir þessu. Hve miklu er við það að bæta?

Þegar forsetinn tjáir sig um gríðarlegar hættur af Kötlugosi, ofan á það sem þegar hefur verið sagt, er nema von að sumir hugsi sig tvisvar um þegar kemur að ákvörðun um Íslandsheimsókn. Forsetinn er ekki sérfræðingur um málefni eldgosa. Ef hann væri það myndi hann t.d. vita að Kötlugos vara alla jafna stutt. Þau geta haft áhrif á flugumferð víða um heim, líkt og hefur verið, en mannslíf eru vart í hættu og lífsafkoma manna ógnað einungis næst gosstöðvunum. 

Spurningin er því, hvað vakir fyrir manninum? 

Ólafur Als, 27.4.2010 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hjörtur Sveinsson

Höfundur

Hjörtur Sveinsson
Hjörtur Sveinsson

Bloggvinir

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...m_grunnijpg
  • ...9-11
  • ...carmne2
  • ...ogik_991550
  • ...hundalogik

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 2199

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband